Félög í Kína og á Ítalíu eru mjög áhugasöm að fá Ítalann Claudio Ranieri til liðs við sig en Ranieri fékk reisupassann frá Englandsmeisturum Leicester City fyrir helgina.
„Það er mikill áhugi á Claudio frá liðum í Kína og á Ítalíu en það er í forgangi hjá honum að koma til baka í ensku úrvalsdeildina eins fljótt og mögulegt er ef sá möguleiki er fyrir hendi,“ sagði Steve Kutner umboðsmaður Ranieri við vefinn Talksport.
Ranieri var við stjórnvölinn hjá Leicester í eitt og hálft ár og undir hans stjórn vann liðið magnað afrek á síðasta tímabili þegar það hampaði Englandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn í sögu félagsins.