Vildum svara fyrir ósanngirnina

Jamie Vardy með boltann í kvöld.
Jamie Vardy með boltann í kvöld. AFP

„Ég veit ekki af hverju við höfum ekki alltaf spilað svona,“ sagði Jamie Vardy, framherji Leicester, eftir 3:1-sigur liðsins á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Fyrir leikinn hafði Leicester ekki skorað á þessu ári.

„Ég hef verið pirraður á því hversu fá mörk ég hef skorað en vonandi mun þetta ýta mér áfram. Við verðum að sýna að við getum barist og getum borið höfuðið hátt,“ sagði Vardy.

Þetta var fyrsti leikurinn eftir að Claudio Ranieri var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra. Enskir fjölmiðlar hafa meðal annars haldið því fram að það hafi verið vegna pressu frá leikmönnum, en því neitar Vardy.

„Við komum inn í leikinn eftir mikla ósanngirni sem sögð hafði verið í fjölmiðlum og við vildum svara fyrir það,“ sagði Vardy.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert