Orðrómur um Neymar fáranlegur

Neymar er ekki á leið til Manchester United.
Neymar er ekki á leið til Manchester United. AFP

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United hefur enga trú á að enska félagið geti lokkað Brasilíumanninn Neymar frá spænska félaginu Barcelona. 

Neymar sagði í viðtali í síðustu viku að hann heillaðist að ensku úrvalsdeildinni og að allir leikmenn væru til í að leika með Mourinho og Pep Guardiola. Hann er hins vegar á fimm ára samning hjá Barcelona og gæti United þurft að borga 181 milljón punda fyrir þjónustu hans. 

„Þetta er orðrómur, en þetta er fáranlegur orðrómur. Félag eins og Barcelona hefur engan áhuga á að missa Neymar. Messi er 30 ára og Neymar mun vera frábær leikmaður hjá Barcelona, eftir að Messi hættir," sagði Mourinho. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert