Tilbúnir að bæta í launaumslagið

David de Gea.
David de Gea. AFP

Manchester United er reiðubúið að gera nýjan samning við spænska landsliðsmarkvörðinn David de Gea og gera hann að einum launahæsta leikmanni félagsins.

De Gea hefur enn og aftur verið orðaður við spænska stórliðið Real Madrid en Manchester United vill alls ekki missa Spánverjann úr sínum röðum, sem á tvö ár eftir af núgildandi samningi sínum við Manchester-liðið.

De Gea fær 200 þúsund pund í vikulaun, sem jafngildir um 28 milljónum króna, en forráðamenn United eru sagðir tilbúnir að bæta í launaumslagið hjá markverðinum snjalla og greiða honum 300 þúsund pund á viku líkt og þeir Paul Pogba, Wayne Rooney og Zlatan Ibrahimovic fá í laun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert