Það verður vængbrotið lið Manchester United sem tekur á mót WBA í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn.
Paul Pogba er ekki búinn að jafna sig af meiðslum í læri og verður til taks, Chris Smalling og Phil Jone meiddust báðir í verkefni með enska landsliðinu og þeir Zlatan Ibrahimovic og Ander Herrera taka báðir út leikbann.
Marcos Rojo og Antonio Valencia koma báðir til Manchester í dag eftir að hafa spilað með landsliðum sínum í undankeppni HM í vikunni og það kann að vera að þeir séu eitthvað laskaðir.