Kanté og Alli sköruðu fram úr

N'Golo Kante, leikmaður Chelsea, tæklar Dele Alli, leikmann Tottenham Hotspur.
N'Golo Kante, leikmaður Chelsea, tæklar Dele Alli, leikmann Tottenham Hotspur. AFP

N'golo Kanté, leikmaður Chelsea, var valinn besti leikmaður keppnistímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla, í kjöri leikmanna deildarinnar, en tilkynnt var um kjörið við hátíðlega athöfn í kvöld.

Kanté hefur leikið afar vel inni á miðsvæðinu hjá Chelsea sem trónir á toppi deildarinnar með 75 stig og er fjórum stigum á undan Tottenham Hotspur þegar sex umferðir eru eftir af deildinni.

Dele Alli, leikmaður Tottenham Hotspur, var svo valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. Þetta er annað árið í röð sem Alli hlýtur þessa nafnbót, en hann hefur skorað 16 mörk fyrir Tottenham Hotspur í deildinni á leiktíðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert