Arsene Wenger og lærisveinar hans í Arsenal eru ekki búnir að gefast upp í baráttunni um Meistaradeildarsætið en Arsenal marði Englandsmeistara Leicester, 1:0, á heimavelli sínum í kvöld.
„Það var erfitt að brjóta lið Leicester niður en við vorum þolinmóðir og gáfum engin færi á okkur. Nú erum við ekkert að spá í önnur lið. Við þurfum bara að hugsa um okkur sjálfa en markmið okkar eru skýr,“ sagði Wenger.
Arsenal er með 60 stig í sjötta sæti deildarinnar og er fjórum stigum á eftir Manchester City sem er í fjórða sætinu en City tekur á móti grönnum sínum í Manchester United annað kvöld.