Gerrard ráðinn þjálfari hjá Liverpool

Steven Gerrard.
Steven Gerrard. Ljósmynd/liverpoolfc.com

Liverpool staðfestir á vef sínum í dag að goðsögnin Steven Gerrard muni taka við þjálfun U18 ára liðs Liverpool fyrir næstu leiktíð.

Gerrard, sem er 36 ára gamall og batt endi á glæsilegan feril sinn með Liverpool fyrir tveimur árum, tekur til starfa með U18 ára liðið í sumar en Gerrard tók til starfa hjá akademíu Liverpool í febrúar á þessu ári.

„Ég hef haft virkilega skemmtilegan tíma með akademíunni til þessa og hef lært mikið af þjálfarateyminu hér síðan,“ segir Gerrard á vef Liverpool en hann lék í 17 ár með Liverpool. Hann lék alls 710 leiki með félaginu, skoraði 186 mörk og vann 10 titla með því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert