Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í borgarslag Manchester City og Manchester United sem áttust við í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Ethiad-vellinum í kvöld.
Manchester United lék manni færri síðustu 10 mínútur leiksins eftir að Belganum Marouane Fellaini var vikið af velli fyrir að skalla Sergio Agüero í andlitið.
Manchester City réð ferðinni lengst af leiksins en náði ekki að skora gegn grönum sínum sem léku af varfærni nær allan tímann og í seinni hálfleik voru þeir nánast í skotgröfunum.
Manchester City er áfram í fjórða sæti deildarinnar með 65 stig, er stigi á eftir Liverpool, en United er í fimmta sætinu með 64.
Þetta var 24. leikurinn í röð sem Manchester United tapar ekki í deildinni og félagið jafnaði félagsmet frá tímabilinu 2010-11.
Man. City | 0:0 | Man. Utd | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Uppbótartíminn er 6 mínútur. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |