Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur tilkynnti rétt í þessu að það myndi spila alla heimaleiki sína á næsta keppnistímabili á þjóðarleikvangi Englendinga í London, Wembley.
Þetta var endanlega ákveðið á stjórnarfundi í dag en sumarið 2018 á hinn nýi leikvangur Tottenham sem er í byggingu við hliðina á White Hart Lane að vera tilbúinn til notkunar.
Í yfirlýsingu frá Daniel Levy stjórnarformanni segir að þá verði Tottenham komið með einn af bestu leikvöngum heims og þann allra óvenjulegasta, enda verði þar líka spilaðir leikir í amerísku NFL-deildinni.