Krísa hjá Arsenal fyrir bikarúrslitin

Shkodran Mustafi er tæpur fyrir bikarúrslitaleikinn.
Shkodran Mustafi er tæpur fyrir bikarúrslitaleikinn. AFP

Shkodran Mustafi, leikmaður Arsenal, gæti misst af úrslitaleik enska bikarsins gegn Chelsea á laugardaginn kemur, vegna heilahristings sem hann fékk í sigri liðsins gegn Sunderland í síðustu viku. Lauren Koscielny verður í leikbanni og Gabriel missir líklegast af leiknum vegna meiðsla. Þrír bestu miðverðir Arsenal gætu því misst af leiknum. 

Mustafi kláraði leikinn gegn Sunderland, en hann gat ekki leikið gegn Sunderland í lokaumferðinni vegna heilahristingsins. Koscielny fékk rautt spjald gegn Sunderland og er hann því í banni og Gabriel þurfti að fara af velli vegna hnémeiðsla. 

Per Mertesacker kom inn í stað Gabriel, en hann lék þá sinn fyrsta leik á tímabilinu eftir að hafa meiðst illa á undirbúningstímabilinu. Eini byrjunarliðsleikur Mertesacker á leiktíðinni verður því líklegast bikarúrslit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert