Fyrrverandi leikmaður Newcastle fangelsaður

Nile Ranger.
Nile Ranger.

Nile Ranger, sem á sínum tíma spilaði 26 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Newcastle, hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir fjársvik.

BBC greinir frá þessu. Ranger er 25 ára gamall, en hann notaði sér bankaupplýsingar annarra til þess að draga sér fé og var í slagtogi með öðrum í svindlinu.

Ranger hefur verið duglegur að komast í fréttirnar fyrir rangar sakir. Hann var rekinn frá Newcastle fyrir fjórum árum eftir að hafa verið ákærður fyrir nauðgun og hefur oft komist í kast við lögin vegna agavandamála.

Ranger var á mála hjá Southend í ensku C-deildinni í vetur og skoraði 8 mörk í 24 deildarleikjum. Hann var á sínum tíma lykilmaður í enska U19 ára landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert