United aflýsir fréttamannafundi

Leikmenn Manchester United minntust fórnalamba árásarinnar í Manchester í gærkvöld …
Leikmenn Manchester United minntust fórnalamba árásarinnar í Manchester í gærkvöld við upphaf æfingarnnar í morgun. Ljósmynd/twitter

Manchester United hefur aflýst síðasta fréttamannafundinum fyrir úrslitaleikinn gegn Ajax í Evrópudeildinni í kjölfar voðaverksins við Manchester Arena í gærkvöld þar sem 22 létust og á sjötta tug fólks slasaðist í sjálfsmorðssprengingu.

Manchester United og Ajax eigast við úrslitaleik Evrópudeildarinnar á Friends Arena í Stokkhólmi annað kvöld en sigurliðið tryggir sér farseðil í riðlakeppni meistaradeildarinnar á næstu leiktíð.

Leikmenn United tóku æfingu á æfingasvæði félagsins í Manchester í morgun þar sem fórnalambanna í árásinni í gærkvöld var minnst með einnar mínútu þögn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert