Silva sagði upp

Marco Silva kveður Hull í lok síðasta leiksins í deildinni. …
Marco Silva kveður Hull í lok síðasta leiksins í deildinni. Nú hefur hann kvatt fyrir fullt og allt. AFP

Marco Silva hefur sagt upp starfi sínu sem knattspyrnustjóri Hull City í kjölfarið á því að félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni á dögunum. Hull staðfesti uppsögnina rétt í þessu.

Silva er 39 ára gamall Portúgali en hann tók við liði Hull í janúar af Mike Phelan en náði ekki að forða liðinu frá falli. Hull vann þó sex af síðustu átján leikjunum undir hans stjórn en það var ekki nóg og liðið var fallið fyrir lokaumferð deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert