Begovic flytur sig um set á Englandi

Asmir Begovic.
Asmir Begovic. AFP

Englandsmeistarar Chelsea hafa samþykkt 10 milljóna punda tilboð frá Bournemouth í bosníska landsliðsmarkvörðinn Asmir Begovic, samkvæmt heimildum Sky Sports.

Begovic, sem er 29 ára gamall, kom til Chelsea frá Stoke City árið 2015 og hefur verið í hlutverki varamarkvarðar hjá Chelsea en hefur þó komið við sögu í 19 deildarleikjum með liðinu.

Begovic fer nú í viðræður við forráðamenn Bournemouth um kaup og kjör og gengst undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir samning við suðurstrandarliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert