United bætir í vopnabúr sitt

Manchester United fær nýjan njósnara.
Manchester United fær nýjan njósnara. AFP

Manchester United hefur tryggt sér þjónustu yfirnjósnara Ítalíumeistara Juventus, Javier Ribalta.

Ribalta hefur verið í herbúðum Juventus í fimm ár, en hefur einnig unnið með Rafael Benítez þegar hann var hjá Liverpool á sínum tíma. Ribalta hefur verið eignaður mikill heiður af farsælum kaupum Juventus síðustu ár.

Manchester United hefur gengið frá einum kaupum það sem af er sumri en sænski varnarmaðurinn Victor Lindelof kom á 31 milljón punda frá Benfica.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert