Framherjinn Jermain Defoe er genginn í raðir enska úrvalsdeildarliðsins Bournemouth og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Defoe kemur til Bournemouth frá Sunderland sem hann hefur leikið með frá því í janúar 2015. Hann skoraði 15 mörk fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og skoraði 15 mörk en Sunderland féll úr deildinni.
Alls hefur Defoe spilað 468 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Tottenham, Portsmouth, West Ham, Charlton og Sunderland og hefur í þeim skorað 158 mörk. Hann er sjöundi markahæsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar.