Hollenskur markvörður til Swansea

Erwin Mulder.
Erwin Mulder. Ljósmynd/twitter

Swansea City gekk í dag frá samningi við hollenska markvörðinn Erwin Mulder sem kemur til velska liðsins án greiðslu frá hollenska liðinu Heerenveen.

Mulder er 28 ára gamall og skrifaði hann undir þriggja ára samning við velska liðið. Hann hefur leikið með Heerenveen frá árinu 2015 en var þar áður í herbúðum Feyenoord þar sem hann lék 120 deildarleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert