Barcelona með risatilboð í Coutinho

Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. AFP

Barcelona hefur ekki gefist upp á að reyna að frá brasilíska miðjumanninn Philippe Coutinho til liðs við sig frá Liverpool í sumar.

Fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Börsungar hafi boðið Liverpool 72 milljónir punda í Brassann frábæra sem er 25 ára gamall og hefur spilað í Liverpool-treyjunni frá árinu 2013.

Nær fullvíst er talið að Liverpool hafni tilboði Börsunga enda vill félagið alls ekki missa Coutinho úr sínum röðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert