Birkir fær nýjan liðsfélaga

Glenn Whelan er orðinn leikmaður Aston Villa.
Glenn Whelan er orðinn leikmaður Aston Villa. AFP

Enska B-deildarfélagið Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Glenn Whelan frá Stoke. Miðjumaðurinn skrifar undir tveggja ára samning við Aston Villa og mun hann veita Birki Bjarnasyni samkeppni á miðjunni. 

Whelan var í níu ár hjá Stoke og lék hann 336 leiki fyrir liðið á þeim tíma. Hann hefur einnig leikið með Manchester City, Bury og Sheffield Wednesday. Whelan á yfir 80 leiki fyrir írska landsliðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert