Swansea með Wilshere í sigtinu

Jack Wilshere.
Jack Wilshere. AFP

Swansea City hefur áhuga á að fá miðjumann Jack Wilshere að því er fjölmiðlar á Englandi greina frá.

Wilshere er samningsbundinn Arsenal en hann var í láni hjá Bournemouth á síðustu leiktíð en þessi öflugi miðjumaður hefur verið afar óheppinn með meiðsli á sínum ferli. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal en óvíst er um framtíð hans hjá Lundúnaliðinu.

Swansea vill styrkja hóp sinn fyrir komandi leiktíð en meiri líkur heldur en minni eru á að Gylfi Þór Sigurðsson yfirgefi velska liðið og gangi til liðs við Everton.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert