Conte búinn að skipa nýjan fyrirliða

Antonio Conte.
Antonio Conte. AFP

Antonio Conte, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Chelsea, hefur ákveðið hvaða leikmaður mun bera fyrirliðabandið á komandi leiktíð.

Miðvörðurinn Gary Cahill hefur verið skipaður nýr fyrirliði liðsins og tekur hann við hlutverki John Terry sem í sumar yfirfag félagið og gekk í raðir Aston Villa þar sem hann verður liðsfélagi Birkis Bjarnasonar.

Cahill var varafyrirliði Chelsea á síðustu leiktíð en þar sem Terry kom lítið við sögu var miðvörðurinn sterki með fyrirliðabandið í flestum leikjum liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert