Upp með einu liði en fór til annarra nýliða

Izzy Brown með treyju Brighton.
Izzy Brown með treyju Brighton. Ljósmynd/Brighton

Chelsea hefur lánað framherjann Izzy Brown til nýliða Brighton í ensku úrvalsdeildinni, en Brown þessi komst raunar upp úr B-deildinni með öðru liði á síðasta tímabili.

Brown, sem er tvítugur, var á láni hjá Huddersfield í fyrra og skoraði þá fimm mörk þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Þar mun hann hins vegar taka slaginn með Brighton.

Brown framlengdi um leið samning sinn við Chelsea, en hann hefur verið á mála hjá liðinu síðan 2013 en lánaður að auki til Vitesse og Rotherham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert