Van Dijk á leið til Liverpool

Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk. AFP

Enskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöld að hollenski miðvörðurinn Virgil van Dijk muni ganga í raðir Liverpool frá Southampton áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.

Van Dijk hefur verið í sigtinu hjá Liverpool í allt sumar og á dögunum fór hann þess á leit við forráðamenn Southampton að fá að yfirgefa félagið en hann er samningsbundinn því til ársins 2022.

Í kjölfarið fékk miðvörðurinn sterki ekki að æfa með liðinu og fór ekki með því í æfingaferð til Frakklands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert