Coutinho tilbúinn í verkfall hjá Liverpool

Hvað gerir Philippe Coutinho?
Hvað gerir Philippe Coutinho? AFP

Brasilíski sóknarmaðurinn Philippe Coutinho hjá Liverpool er sagður vera kominn í verkfall á félaginu til þess að reyna að þvinga fram félagaskipti hans til Barcelona.

Spænski miðillinn Mundo Deportivo segir að Coutinho sé tilbúinn til þess að beita öllum ráðum til þess að komast frá Liverpool. Þá er sagt að hann hafi tjáð stjóranum Jürgen Klopp að hann muni aldrei klæðast treyju Liverpool framar.

Hinn 25 ára gamli Coutinho hefur verið þrálátlega orðaður við Barcelona og sérstaklega eftir að Neymar var seldur þaðan á dögunum. Liverpool vill hins vegar alls ekki missa kappann og hefur þegar hafnað háu tilboði í hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert