Gylfi verður númer 18 hjá Everton

Gylfi í nýju treyjunni í dag.
Gylfi í nýju treyjunni í dag. Ljósmynd/Heimasíða Everton

Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum að Gylfi Þór Sigurðsson skrifaði undir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Everton í dag en hann var keyptur frá Swansea á metfé. 

Gylfi mun leika á treyju númer 18 hjá nýja liðinu, en Gareth Barry, sem gekk í raðir WBA í gærkvöldi var áður í treyju númer 18. 

Leikmenn eins og Wayne Rooney og Phil Neville eru meðal þeirra sem hafa leiktið í treyju númer 18 hjá liðinu í gegnum tíðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert