Gylfi á varamannabekk Everton

Gylfi Þór Sigurðsson er á meðal varamanna Everton.
Gylfi Þór Sigurðsson er á meðal varamanna Everton. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er á meðal varamanna Everton sem mætir Manchester City á útivelli í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar kl. 19.00. Gylfi gekk í raðir Everton frá Swansea á dögunum og er hann í fyrsta skipti í leikmannahópi liðsins. 

Everton borgaði um 45 milljónir fyrir Gylfa og er hann dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Það verður að teljast ansi líklegt að Gylfi komi inn á sem varamaður á einhverjum tímapunkti í leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert