Jói Berg kominn með nýjan liðsfélaga

Chris Wood er genginn í raðir Burnley.
Chris Wood er genginn í raðir Burnley. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson er kominn með nýjan liðsfélaga hjá Burnley, en Chris Wood er kominn til félagsins frá Leeds á 15 milljónir punda. Þar með er hann dýrasti leikmaður í sögu Burnley. Wood á að fylla í skarð framherjans Andre Gray, sem fór til Watford fyrir stuttu á 18 milljónir punda.

Kappinn var markahæstur í næstefstu deild Englands á síðasta tímabili með 27 mörk. Ný-Sjálendingurinn hefur spilað víða á Englandi og er góður liðsauki fyrir Burnley, en samningur kappans er til fjögurra ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert