United og Tottenham berjast ungan leikmann

Sessegnon í leik með Fulham.
Sessegnon í leik með Fulham. AFP

Ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester United og Tottenham berjast um Ryan Sessegnon, 17 ára leikmann Fulham, ef marka má heimildir Sky Sports. Sessegnon hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 26 leiki í B-deild Englands. 

Leikmaðurinn var hluti af enska U19 ára landsliðinu sem varð Evrópumeistari í sumar. Takist United eða Tottenham að landa Sessegnon verður hann að öllum líkindum lánaður aftur til Fulham til loka leiktíðar. 

Fulham hefur hins vegar lítinn áhuga á að selja leikmanninn og vill félagið fá meira en 25 milljónir punda fyrir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert