Everton hættir við fréttamannafund

Ronald Koeman er sagður valtur í sessi.
Ronald Koeman er sagður valtur í sessi. AFP

Forráðamenn Everton, liðs Gylfa Þórs Sigurðssonar, munu ekki halda fréttamannafund fyrir bikarleik við Sunderland sem fram fer á morgun, en jafnan er venja að knattspyrnustjórar sitji fyrir svörum í aðdraganda leikja.

Everton mætir Sunderland í enska deildabikarnum á morgun og hafa ákveðið að láta Ronald Koeman ekki svara spurningum blaðamanna fyrir leikinn. Hann hefur verið mikið í kastljósinu eftir slæma byrjun Everton á leiktíðinni og er jafnvel talinn valtur í sessi.

Koeman mun hins vegar halda fréttamannafund á fimmtudag í aðdraganda næsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni við Bournemouth.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert