Gylfi byrjar á bekknum

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson byrjar á varamannabekk Everton sem tekur á móti Sunderland í 32-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Gylfa og félögum hefur gengið illa síðustu vikurnar en Everton hefur tapað fjórum leikjum í röð án þess að skora mark en þeir bláklæddu vonast til að geta snúið blaðinu við í kvöld og fagnað langþráðum sigri. Wayne Rooney er ekki í leikmannahópi Everton í kvöld.

Byrjunarlið Everton: Stekelenburg, Kenny, Williams, Keane, Holgate, Besic, Davies, Klaassen, Vlasic, Calvert-Lewin, Sandro.

Fimm leikir fara fram í deildabikarnum í kvöld og verður fylgst með gangi mála í þeim hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert