Birkir fær kaldar kveðjur

Birkir Bjarnason með Villa-treyjuna.
Birkir Bjarnason með Villa-treyjuna. Ljósmynd/Twitter

Hluti af stuðningsmönnum enska B-deildarliðsins Aston Villa vandaði ekki Birki Bjarnasyni kveðjurnar eftir tap liðsins á heimavelli gegn Middlesbrough í ensku deildabikarkeppninni í knattspyrnu í vikunni.

Birkir var í byrjunarliði Aston í annað sinn á þessu tímabili og stuðningsmenn Aston Villa sendu landsliðsmanninum tóninn í Twitter-færslum eftir leikinn en hér að neðan má sjá nokkrar þeirra. Ein þeirra er frá Olof Mellberg, fyrrverandi leikmanni sænska landsliðsins, sem lék með Aston Villa frá 2001-08 en í færslu sinni skrifar hann að Birkir sé líklega versti leikmaðurinn sem hann hefur séð spila með liði Villa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert