Belgíski framherjinn Romelu Lukaku hjá Manchester United hefur tekið undir þær gagnrýnisraddir sem uppi eru um söng stuðningsmanna liðsins sem tengist karlmennsku hans.
Í söngnum er sérstaklega vísað í getnaðarlim belgíska framherjans og segja forsvarsmenn „Kick it out“ að það sé greinileg rasísk tilvísun um þá sem eru svartir á hörund.
„Rasismi ætti aldrei að vera samþykktur, sama þótt hugsunin sé að upphefja leikmanninn,“ segir í tilkynningu frá samtökunum sem berjast gegn rasisma. Stuðningsmannafélag United hefur biðlað til stuðningsmanna að láta af söngnum.
„Ég hef fengið frábæran stuðning síðan ég kom til Manchester United. Stuðningsmennirnir hafa meint vel með þessum söngvum en nú skulum við halda áfram veginn,“ segir Lukaku um málið.