Þrír markahæstir

Sergio Agüero fagnar marki sínu gegn Crystal Palace á laugardaginn.
Sergio Agüero fagnar marki sínu gegn Crystal Palace á laugardaginn. AFP

Þrír framherjar eru markahæstir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en sjöttu umferð deildarinnar lýkur í kvöld með viðureign Arsenal og WBA á Emirates Stadium.

Sergio Agüero, Romelu Lukaku og Álvaro Morata eru marhæstir í deildinni en allir voru þeir á skotskónum með liðum sínum um nýliðna helgi.

Þessir eru markahæstir:

6 - Sergio Agüero, Manchester City
6 - Romelu Lukaku, Manchester United
6 - Álvaro Morata, Chelsea
5 - Raheem Sterling, Manchester City
5 - Jamie Vardy, Leicester
4 - Gabriel Jesus, Manchester City
4 - Harry Kane, Tottenham
4 - Mohamed Salah, Liverpool

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert