Mendy hugsanlega frá í langan tíma

Benjamin Mendy meiddist í leiknum gegn Crystal Palace á laugardaginn.
Benjamin Mendy meiddist í leiknum gegn Crystal Palace á laugardaginn. AFP

Hnémeiðsli franska varnarmannsins Benjamins Mendy í liði Manchester City, sem meiddist í leiknum gegn Crystal Palace um síðustu helgi, virðast vera alvarlegri en haldið var í fyrstu.

Í fyrstu var talið að um smávægileg meiðsli væri að ræða en nú berast fréttir um að leikmaðurinn sé kominn til Barcelona þar sem hann mun fara í skoðun hjá sérfræðingi. Læknalið City óttast að liðböndin í hnénu séu það sködduð að Mendy þurfi að gangast undir aðgerð og sé það raunin mun hann verða frá keppni næstu mánuði.

Mendy kom til Manchester City í sumar frá Mónakó og var verðmiðinn á honum 52 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert