Vill semja við leikmenn sem fyrst

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, vill að félagið geri nýja samninga við nokkra leikmenn liðsins sem fyrst.

Mourinho vill að Manchester United verði búið að gera nýja samninga við Marcus Rashford og Marouane Fellaini áður en félagaskiptaglugginn verður opnaður í janúar. Samningur Fellaini við Manchester-liðið rennur út næsta sumar en Rashford er samningsbundinn félaginu til ársins 2020.

Þá er knattspyrnustjórinn vongóður um að spænski miðjumaðurinn Ander Herrera geri nýjan samning og til stendur að hefja viðræður við spænska markvörðinn David De Gea á næstu vikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert