Mahrez bjargaði jafntefli fyrir Leicester

Riyad Mahrez fagnar jöfnunarmarki sínu.
Riyad Mahrez fagnar jöfnunarmarki sínu. AFP

Einn leikur var á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Leicester City fékk þá heimsókn frá West Bromwich Albion og skiptu liðin með sér stigunum eftir 1:1-jafntefli. 

Nacer Chadli kom WBA yfir á 63. mínútu með fallegu marki beint úr aukaspyrnu en Riyad Mahrez jafnaði með föstu skoti innan teigs á 80. mínútu og þar við sat. 

WBA hefur ekki unnið leik síðan 22. ágúst og Leicester ekki síðan 19. september. WBA er í 10. sæti með tíu stig eftir átta leiki og Leicester í 18. sæti, sem er fallsæti, með aðeins sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert