Ætlar ekki að enda ferilinn hjá United

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, á ekki von á að enda ferilinn sinn sem stjóri liðsins. Portúgalinn hefur aldrei verið lengur en í fjögur ár hjá sama félagi, en hann er á sínu öðru tímabili hjá United.

„Ég á ekki von á að klára ferilinn hjá Manchester United. Ég hef enn þrá til að prófa nýja hluti,“ sagði Mourinho í samtali við TF1-sjónvarpsstöðina í Frakklandi. 

Mourinho hefur verið orðaður við franska félagið Paris Saint-Germain að undanförnu, en sonur hans er mikill stuðningsmaður liðsins, hvers vegna? 

„Það er eitthvað mjög sértakt að gerast í París. Það er góðir ungir leikmenn þar og það er frábært að sjá liðið,“ bætti hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert