Agüero markahæstur í sögu Man.City

Sergio Agüero er ásamt Eric Brook markahæsti leikmaður í sögu …
Sergio Agüero er ásamt Eric Brook markahæsti leikmaður í sögu Manchester City. AFP

Argentínski landsliðsframherjinn Sergio Agüro komst rétt í þessu upp að hlið Eric Brook sem markahæsti leikmaðurinn í sögu Manchester City þegar hann kom Manchester City í 1:0 gegn Burnley í leik liðanna í níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á Etihad Stadium. 

Agüero og Brook hafa hvor um sig skorað 177 mörk, en Brook raðaði inn mörkum fyrir Manchester City á árunum 1928 - 1939. Brook varð enskur meistari með Manchester City vorið 1937 og enskur bikarmeistari með liðinu árið 1934. 

Agüero gekk til liðs við Manchester City frá Atlético Madrid árið 2011 og hefur því skorað mörkin sín 177 á sex árum, en það tók Brook ellefu ár að setja metið á sínum tíma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert