Gylfi í byrjunarliði Everton

Gylfi Þór og Wayne Rooney.
Gylfi Þór og Wayne Rooney. AFP

Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem tekur á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Leikurinn hefst klukkan 12.30 og fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu.

Gylfi var á meðal varamanna Everton þegar liðið tapaði 2:1 fyrir Lyon í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöld. Hann kom inn á í seinni hálfleik og lagði upp mark Everton, sem varnarmaðurinn Ashley Williams skoraði.

Everton er fyrir leik dagsins með átta stig í 16. sæti en Arsenal er í 7. sæti með 13 stig.

Byrjunarlið Everton: Pickford, Kenny, Keane, Williams, Jagielka, Baines, Gylfi Þór, Gueye, Vlasic, Rooney, Calvert-Lewin.

Byrjunarlið Arsenal: Cech, Bellerin, Mertesacker, Koscielny, Monreal, Kolasinac, Ramsey, Xhaka, Ozil, Sanchez, Lacazette.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert