Koeman áfram með Everton

Ronald Koeman.
Ronald Koeman. AFP

Ronald Koeman verður áfram við stjórnvölinn hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton, þrátt fyrir skelfilegt gengi í byrjun leiktíðar. Everton eyddi fúlgum fjár í nýja leikmenn fyrir tímabilið en þrátt fyrir það er liðið í fallsæti eftir níu umferðir með aðeins átta stig.

Næsti leikur Everton er gegn Chelsea í deildabikarnum á miðvikudaginn kemur. Einhverjir héldu að Koeman myndi taka pokann sinn eftir 5:2-tapið gegn Arsenal í gær, en Hollendingurinn nýtur trausts stjórnar félagsins, sem stendur hið minnsta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert