Spilað í enska deildabikarnum í vikunni

Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney mæta Chelsea á Stamford …
Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney mæta Chelsea á Stamford Bridge. AFP

16-liða úrslitin í ensku deildabikarkeppninni í knattspyrnu fara fram í vikunni. Á morgun fara fram sex leikir og tveir leikir á miðvikudagskvöldið.

Gylfi Þór Sigurðsson og samherjar hans í Everton, sem nú leitar að nýjum stjóra eftir að Ronald Koeman var rekinn í dag, eiga erfitt verkefni fyrir höndum en þeir sækja Chelsea heim og ríkjandi deildabikarmeistarar Manchester United fara til Wales og spila við Swansea.

Leikirnir í 16-liða úrslitunum eru:

Þriðjudagur:
Bournemouth - Middlesbrough
Arsenal - Norwich
Bristol City - Crystal Palace
Leicester - Leeds
Swansea - Manchester United
Manchester City - Wolves

Miðvikudagur:
Chelsea - Everton
Tottenham - West Ham

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert