John Stones, miðvörðurinn öflugi í liði Manchester City, gæti orðið frá keppni í allt að sex vikur.
Stones tognaði aftan í læri í sigri City gegn Leicester City á King Power vellinum í gær og haltraði af velli eftir 31 mínútu leik.
„Þetta er slæmt því það eru margir leikir fram undan hjá okkur. Við erum ekki með marga miðverði en við finnum lausn á þessu,“ sagði Pep Guardiola, stjóri City, eftir leikinn en lið hans er á gríðarlegri siglingu og hefur átta stiga forskot í ensku úrvalsdeildinni.