Þetta var ótrúlegt kvöld

Markaskorarar Tottenham í kvöld.
Markaskorarar Tottenham í kvöld. AFP

Harry Kane, framherjinn frábæri í liði Tottenham, var að vonum ánægður eftir 2:1 útisigur gegn Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld.

Með sigrinum tryggði Tottenham sér sigur í riðlinum en Kane og og Son Heung-min skoruðu mörk Tottenham eftir að Pierre-Emerick Aubameyang hafði náð forystunni fyrir þýska liðið.

„Þetta var frábært og ótrúlegt kvöld fyrir stuðningsmennina og félagið. Margir höfðu efasemdir áður en riðlakeppnin hófst hvort við kæmust nokkuð áfram en annað kom á daginn. Þetta var frábært kvöld. Það var frábært að ná að skora og markið hjá Son var glæsilegt,“ sagði Kane eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert