Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Mohamed Salah þurfi ekki að sanna neitt fyrir viðureign Liverpool og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Salah hefur verið frábær á sínu fyrsta tímabili með Liverpool, en hann náði ekki að heilla menn hjá Chelsea þegar hann var keyptur þangað árið 2014. Hann fór síðan til Roma þaðan sem Liverpool keypti hann og hefur síðan slegið í gegn.
„Hann var mjög ungur og í mjög góðu liði sem hann náði ekki að brjóta sér leið inn í. Það gerist oft. Annar slíkur leikmaður er Kevin De Bruyne og hann stendur sig ekki illa núna,“ sagði Klopp og vísar til Belgans sem er lykilamaður hjá Manchester City eftir rólega tíð hjá Chelsea.
„Það er ekki Mo að kenna hvernig fór, enda var Chelsea þá með frábært lið. Hann hefur bætt sig mikið og hann þarf ekki að sanna neitt fyrir neinum og ég held að hann sjái það ekki heldur,“ sagði Klopp.
Hann sagði jafnframt að þeir Adam Lallana og Joel Matip yrðu ekki með vegna meiðsla og óvissa ríkti um Emre Can.