Sannkallaður stórleikur á Anfield í dag

Jürgen Klopp og Roberto Firmino fá Chelsea í heimsókn.
Jürgen Klopp og Roberto Firmino fá Chelsea í heimsókn. AFP

Sex leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og óhætt er að segja að síðdegisleikurinn sé af stærri gerðinni.

Klukkan 15 eru fimm leikir á dagskrá þar sem Manchester United mætir Brighton og Tottenham fær West Brom í heimsókn svo eitthvað sé nefnt.

Klukkan 17.30 mætast hins vegar Liverpool og Chelsea á Anfield. Fyrir leikinn er Chelsea í þriðja sæti með 25 stig en Liverpool er í fimmta sætinu með 22 stig.

Leikir dagsins:

15.00 Crystal Palace – Stoke
15.00 Man. Utd – Brighton
15.00 Newcastle – Watford
15.00 Swansea – Bournemouth
15.00 Tottenham – West Brom
17.30 Liverpool - Chelsea

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert