Morata ekki með í kvöld

Álvaro Morata kom til Chelsea frá Real Madrid í sumar.
Álvaro Morata kom til Chelsea frá Real Madrid í sumar. AFP

Álvaro Morata, markahæsti leikmaður Englandsmeistara Chelsea í knattspyrnu á þessu keppnistímabili, verður fjarri góðu gamni í kvöld þegar lið hans sækir nýliða Huddersfield heim.

Morata, sem hefur skorað 9 mörk fyrir Chelsea í úrvalsdeildinni það sem af er tímabilinu og er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar, er meiddur í baki og glímir auk þess við þreytu, að því er knattspyrnustjórinn Antonio Conte sagði á fréttamannafundi í gær.

Chelsea er í þriðja sæti fyrir 17. umferðina sem er leikin í kvöld og annað kvöld en liðið er með 32 stig, þremur minna en Manchester United sem er í öðru sæti. Huddersfield er í 12. sæti með 18 stig.

Leikur liðanna hefst klukkan 20, sem og viðureign Crystal Palace og Watford, en kl. 19.445 eigast við Burnley og Stoke.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert