Rooney líður best gegn Newcastle

Wayne Rooney hefur reynst Newcastle erfiður.
Wayne Rooney hefur reynst Newcastle erfiður. AFP

Wayne Rooney var hetja Everton í gær þegar hann skoraði sigurmarkið í 1:0-sigri á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Þetta er ekki beint í fyrsta sinn sem Rooney finnur netmöskvana gegn þeim svarthvítu, en þetta var 15. mark hans í deildinni gegn Newcastle.

Rooney hefur ekki skorað jafnmörg mörk gegn nokkru öðru einstöku liði á ferli sínum í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert