Fyrrverandi enski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Kieron Dyer, segir að Tottenham verði að borga leikmönnum sínum hærri laun. Dyer segir að hann hafi fengið betur borgað þegar hann var upp á sitt besta í upphafi aldarinnar.
„Ég talaði við leikmann Tottenham sem er byrjunarliðsmaður hjá félagsliði og landsliði. Hann sagði mér launin sín en ég var á hærri launum hjá Newcastle árið 2002,“ sagði Dyer í útvarpsþætti á BBC.
„Þetta er leikmaður í liði sem hafnaði í öðru sæti á síðasta keppnistímabili og hann er á verri launum en ég var á fyrir 15 árum síðan!“ bætti Dyer við.