Fyrstur í 20 mörkin síðan Rush afrekaði það

Mohamed Salahí baráttu við tvo leikmenn Bournemouth í dag.
Mohamed Salahí baráttu við tvo leikmenn Bournemouth í dag. AFP

Egyptinn Mohamed Salah varð fyrsti leikmaður Liverpool til að skora 20 mörk fyrir jól síðan goðsögnin Ian Rush afrekaði það tímabilið 1986-87.

Salah skoraði eitt af fjórum mörkum Liverpool í 4:0 útisigri liðsins gegn Bournemouth. Hann hefur þar með skorað 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er markahæstur. Hann hefur skorað tveimur mörkum meira en Harry Kane, framherji Tottenham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert